Bustarfell

4_teikning

Minjasafnið Bustarfelli er í Hofsárdal í Vopnafirði.

Safnið er opið frá 10. júní til 10. september ár hvert.

Við hliðina á safninu er kaffihús, Hjáleigan – Café.

Sími 471-2211 og 844-1153.  Netfang: bustarfell@simnet.is

 

Dagatal

September 2010 Október 2010
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30

Kveðskapur dagsins

4. sept, Benedikt Gröndal

Köld ertu móðurmold,

mæt þó og unaðsæt:

ríður um reginleið

rósfagurt norðurljós.

Sæl er í djúpum dal

döggin um leiti snögg,

leika við tæran læk

ljómandi fjallablóm.

  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
  • JoomlaWorks Simple Image Rotator
Sveitamarkaður
Föstudagur, 20. ágúst 2010 17:10
AddThis Social Bookmark Button
Laugardagur 21. ágúst 2010

 
Á morgun er sveitamarkaður hér á Bustarfelli.  Glæsilegur varningur á borðstólunum frá mörgum ólíkum aðilum. Spjall í boði ásamt kakói frá Engihlíðarbúinu.  Einnig má fá sér kaffi og meðlæti í Hjáleigunni.
Hrosshársvinnsla verður sýnd í vinnusmiðjunni "Sparðinu" og grísli málar bæinn rauðan:)
Amman og börnin á svæðinu og gleðja mann og annan.

Láttu þetta ekki framhjá þér fara.
Minjasafnið á Bustarfelli

 
Gönguferð á laugardag, Amman og börnin og kaffihlaðborð sunnudag.
Mánudagur, 02. ágúst 2010 15:28
AddThis Social Bookmark Button

Næstkomandi laugardag, þann 7. ágúst 2010 verður gönguferð frá Kálffelli, niður í Foss í Vopnafirði undir leiðsögn Jóhanns Einarssonar, ef næg þátttaka fæst.

Lagt verður af stað með bíl frá Minjasafninu á Bustarfelli kl. 10 um morgunin og göngugörpum keyrt að Kálffelli, hvaðan gengið verður af stað. Þaðan er gengið niður í Foss. Þá er haldið áfram í gegnum Sniðin, hvar náð er í göngufólk. Áætlað er að komið sé í Bustarfell aftur milli 16:00 og 17:00. Góður göngufatnaður og skór nauðsynlegur, ásamt drykkjaföngum.

Gangan kostar 4000 kr. Innifalið í verði er nesti, kaka, brauð og kaffi í Hjáleigu eftir göngu, leiðsögn og keyrsla að upphafsreit og frá endareit.

Upplýsingar og skráning í síma 471-2211 og 844-1153.

 

Sunnudaginn 8. ágúst kl. 14:00.  Kaffihlaðborð í Hjáleigunni á Bustarfelli.

Gott er að hafa mikinn mat og marga helgidaga!

Næstkomandi sunnudag, 8. ágúst er tækifæri til að metta magann svo um munar.  Kaffihlaðborð ömmu gömlu,uppdeitað og stílfært, stendur ykkur öllum til boða frá kl. 14:00.

 

Munum það að á mettum maga stendur hýrlegt höfuð:)

 

Sjáumst hress og kát:)

 


Hlökkum til að sjá ykkur öll.

 
Viðburðaríkt á Bustarfelli
Miðvikudagur, 14. júlí 2010 22:21
AddThis Social Bookmark Button

Síðustu vikur hafa verið viðburðaríkar í Minjasafninu á Bustarfelli og Hjáleigunni.

Síðustu sunnudaga hafa verið kaffihlaðborð í Hjáleigunni við mjög svo góðar undirtektir og þökkum við kærlega fyrir það.

Snorra-bandið kom sá og sigraði einn sunnudaginn, en Snorri sá er málari sem hefur verið að mála gamlabæinn utan í upprunalegum lit.  Þann sama dag var Hólmfríður Ófeigsdóttir að lita ull í vinnusmiðjunni "Sparðinu".  Kunnum við öllum þátttakendum og gestum okkar bestu þakkir.  Myndir frá deginum má finna á vefslóðinni:http://www.facebook.com/album.php?aid=189747&id=654793765&ref=mf

Um síðustu helgi var íslenski safnadagurinn haldinn hátíðlegur á Bustarfelli, en eins og venja er til er hann haldinn aðra helgina í júlí.  Safnið iðaði af lífi og fjöri þar sem ungir sem aldnir lögðust á eitt við að gera daginn sem eftirminnilegastann og skemmitlegan.  Myndir frá deginum fá finna á þessari heimasíðu undir flipanum myndaalbúm.

Arna Eir Gunnarsdóttir og Matthildur Óskarsdóttir voru glæsilegar á að líta í íslenska upphlutnum og Malen Magnadóttir var alveg yndisleg í litlum barna upphlut.  Mörg dýr voru á svæðinu við góðar undirtektir gesta.  Gamalt handverk var unnið í flestum herbergjum hússins og harmonikku- og orgelhljómur ómaði um bæjinn er Gunnar Sigmarsson ásamt félaga léku af fingrum fram.

Þrátt fyrir skúrir og vætu má segja að fólk hafi haft máltækið að enginn sé verri þó hann vökni, að leiðarljósi þar sem bros og ánægju mátti sjá hvert sem litið var.

Við þökkum hinum fjölmörgu gestum okkar innilega fyrir komuna og vonum að við sjáum ykkur fljótt aftur.

 
Búið að opna!!!
Laugardagur, 12. júní 2010 13:51
AddThis Social Bookmark Button

Minjasafnið og kaffihúsið Hjáleigan hefur nú verið opnað.  Síðasta vikan hefur farið í undirbúning sumarsins og allt er nú klárt til að taka á móti öllum þeim sem óska að kynnast menningararfleifð Vopnafjarðar og/eða fá sér góða köku og kaffisopa með.  Við bjóðum þig og þína velkomin alla daga í sumar frá kl. 10 á morgnanna til kl. 18. á kvöldin.

Við hvetjum ykkur til að kíkja á viðburðadagskrána í sumar.  Þar má finna ýmislegt skemmtilegt eins og kaffihlaðborð flesta sunnudaga, gönguferðir á laugardögum, safnadaginn, sveitadaginn o.s.frv.

Hópar geta pantað málsverð hjá okkur í sumar.  Lítið á matseðilinn á heimasíðunni og leitið tilboða.

Hjarta Bustarfells slær fyrir þig í sumar.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 9
Icelandic(IS)English (United Kingdom)

Skjaldþingsstaðir

Skýjað
Veðrið í dag
Hitastig:
Vindur:
Vindátt:
  15°C
  5
  VNV

Á næstunni

September
Skoða dagatal
RocketTheme Joomla Templates