KL. 11:30 Gönguferð með leiðsögn að Álfkonusteini. Sögur og æfintýri fyrir alla fjölskylduna.
Kl. 14- 16. Ekta sveitamarkaður við Hjáleiguna. Ýmislegt góðgæti á boðstólum s.s broddur, brauð, grös, sultur og fleira. Einnig grænmeti úr Reykjahverfi.
Sýnd verður ullarlitun og börnin geta spreytt sig á listaverkagerð úr ull.
Eldbakað flatbrauð í beinni!
Handverk af ýmsu tagi.
Það verður líf og fjör og einstakt tækifæri til að hittast og spjalla um verðurhorfur næsta sólarhringinn, heyfeng og aflabrögð!
Heitt súkkulaði í boði Engihlíðarbúsins og Hjáleigunar.