Árið 2005 var tekið í notkun þjónustuhús fyrir ferðamenn. Ári seinna var opnað kaffihús sem ber heitið Hjáleigan. Áður fyrr leigðu bændur part úr landi stærri búa og voru það kallaðar hjáleigur. Nafnið “Hjáleigan,, er dregið af þessu.
Boðið er upp á kaffi, te, kakó, safa og meðlæti að þjóðlegum sið.
Hópar geta keypt súpu, létta rétti og tveggjarétta máltíðir ef pantað er fyrirfram. Sjá nánar undir flipanum Matseðill fyrir hópa 2010
Kaffihlaðborð flesta sunnudaga hvar fyrri tíma hnallþórur eru bornar á borð. Nánari upplýsingar er að finna undir flipanum Viðburðir.
Opið 10. júní—10. september frá kl. 12.00—18.00 daglega.