Náttúrulega ehf. á Höfn í Hornafirði hefur útbúið þessa undurfallegu bók. Hún er handgerð og er þæfð ull á bókarkápunni. Í bókinni er sögð saga Þuríðanna tveggja, hjá Þuríðarvatni og Þuríðarstöðum og samskiptum þeirra, en hjá þeim gekk á ýmsu. Sagan hefur ekki áður verið skráð á prenti, en hún fannst í dagbókum Methúsalems Methúsalemssonar og hefur börnum á Bustarfelli ávallt verið sögð þessi saga. Bókin er skrýdd myndum og er bæði á íslensku og ensku. Tilvalin gjöf.
Álfkonan og sýslumannsfrúin
Sagan segir frá samskiptum sýslumannsfrúarinnar á Bustarfelli og álfkonunnar í Álfkonusteini sem hún á að hafa aðstoðað í barnsnauð. Falleg og heillandi þjóðsaga sem okkur ber skilda til að koma áfram til komandi kynslóða.
Salína og Ameríkukistan
Salína var dóttir Methúsalems Einarssonar og Elínar Ólafsdóttur á Bustarfelli.
Salína fór til Vesturheims árið 1905, nánar tiltekið til Winnipeg í Kanda. Dvölin reyndist henni þó erfið þar sem hún veiktist af einhverskonar vírussýkingu og lá lengi á sjúkrahúsi þar vestra, milli heims og helju. Móðir hennar, Elín, sendi bræður hennar Halldór og Björn til Kanada til að hjálpa henni. Hjartnæm saga konu sem lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna og hafði listamannshæfileika á sviði handverks og útskurðar.