Mynstrið sem má sjá í myndunum er eftirmynd mynsturs Álfkonudúksins, sem og liturinn. Sagan segir að Sýslumannsfrú er bjó á Bustarfelli hafi farið inní hýbýli álfa í Álfkonusteini til að hjálpa þar álfkonu í barnsnauð. Í þakklætisskyni gaf álfkonan sýslumannsfrúnni forláta dúk sem gerður var úr Guðavef og allur gullofinn. Dúkur þessi var síðan gefin Hofskirkju og var notaður sem altarisdúkur í fjöldamörg ár.
Í dag er dúkur þessi varðveittur í Þjóðminjasafni Íslands.
Við höfum látið gera fyrir okkur púða og slæður þar sem mynstur álkonudúksins er þrykkt á silki og ykkur gefst nú kostur á að eignast.
Handgert, að sjálfsögðu, á Fáskrúðsfirði. Eins á sjá má eru einnig til myndir af mynstrinu.