|
There are no translations available.
Næstkomandi laugardag, þann 7. ágúst 2010 verður gönguferð frá Kálffelli, niður í Foss í Vopnafirði undir leiðsögn Jóhanns Einarssonar, ef næg þátttaka fæst.
Lagt verður af stað með bíl frá Minjasafninu á Bustarfelli kl. 10 um morgunin og göngugörpum keyrt að Kálffelli, hvaðan gengið verður af stað. Þaðan er gengið niður í Foss. Þá er haldið áfram í gegnum Sniðin, hvar náð er í göngufólk. Áætlað er að komið sé í Bustarfell aftur milli 16:00 og 17:00. Góður göngufatnaður og skór nauðsynlegur, ásamt drykkjaföngum.
Gangan kostar 4000 kr. Innifalið í verði er nesti, kaka, brauð og kaffi í Hjáleigu eftir göngu, leiðsögn og keyrsla að upphafsreit og frá endareit.
Upplýsingar og skráning í síma 471-2211 og 844-1153.
Sunnudaginn 8. ágúst kl. 14:00. Kaffihlaðborð í Hjáleigunni á Bustarfelli.
Gott er að hafa mikinn mat og marga helgidaga!
Næstkomandi sunnudag, 8. ágúst er tækifæri til að metta magann svo um munar. Kaffihlaðborð ömmu gömlu,uppdeitað og stílfært, stendur ykkur öllum til boða frá kl. 14:00.
Munum það að á mettum maga stendur hýrlegt höfuð:)
Sjáumst hress og kát:)
Hlökkum til að sjá ykkur öll. |